Lúxus Phytomer andlitsbað, 2 og hálf klukkustund
Drauma meðferð sem hefst á notalegu baknuddi því næst er heitum þörungamaskanum komið fyrir á baki og á solarplexus.  Maski hitnar og gefur góða slökun, er steinefna- og snefilefnaríkur, vatnslosandi og mjög hreinsandi.  Yndislegt nudd á andlit, háls, herðar og hendur.  Í andlitsbaðinu eru mismunandi áherslur fyrir húð sem er tekin að eldast, viðkvæma húð, þurra húð og feita húð.  Endað er á maska við hæfi.    Lúxus Phytomer andlitsbað er dekur af bestu gerð.

14.700,-

Phytomer andlitsbað, 2 klukkustundir
Andlitsbaðið hefst á ljúfu baknuddi og því næst er maskanum komið fyrir á bakinu.  Maskinn hitar og gefur góða slökun, er steinefna- og snefilefnaríkur, vatnslosandi og mjög hreinsandi.  Andlitshreinsun og plokkun ef vill. Gott andlitsnudd, nudd niður á háls, herðar og bringu.   Í andlitsbaðinu eru mismunandi áherslur fyrir húð sem er tekin að eldast, viðkvæma húð, þurra húð og feita húð. Endað er á maska við hæfi.  Yndisleg og vinsæl meðferð.

12.700,-

Andlitsbað með lyftingu, 2 klukkustundir
Andlitsbaðið hefst á yfirborðshreinsun, augabrúnir snyrtar, djúphreinsikrem
og gufa.  Ionto lyfting, þ.e. litlar blöðkur eru settar á andlitið sem gefa mjúkt
rafnudd í 30 mín. Þessi meðferð lyftir, stinnir og styrkir.  Þessu næst er gott nudd á herðar, háls og andlit í 20mín., uppbyggjandi maski borinn á, sem styrkir teygju og sveigju þræðina í húðinni, að lokum viðeigandi krem.

Dásamleg styrkjandi meðferð fyrir þroskaða húð.

11.500,-

Andlitsbað, 90 mínútur
Klassískt andlitsbað sem hreinsar yfirborð húðarinnar.  Peeling, gufa og djúphreinsun.  Plokkun. Gott andlitsnudd, nudd á háls, herðar og bringu. Maski eftir húðgerð í lokin.

9.500,-

Andlitsnudd og maski, 60 mínútur
Yfirborðshreinsun og peeling á andliti og háls. Gott andlitsnudd niður háls og á  herðar. Maski borinn á andlit og  háls. Krem borið á í lokin til að fullkomna. Yndislegt dekur í klukkutíma sem allir hafa gott af.

7.400,-

Augnmeðferð í andlitsbaði, 30 mínútur
Meðferð sem vinnur á hrukkum og fínum línum.  Nudd á augnsvæði, frábær viðbót við andlitsbað.

3.900,-

Húðhreinsun, 60 mínútur
Klassísk húðhreinsun fyrir þá sem eru með óhreina húð eða fá bólur.  Yfirborðshreinsun, peeling, gufa, kreistun, maski og í lokin er viðeigandi krem borið á andlitið.

6.800,-

Lúxus handsnyrting, 90 mínútur
Handsnyrting fyrir þá sem vilja dekra við sig.  Neglur og naglbönd eru snyrt og hendurnar fá lúxus handanudd.  Kornamaski borinn á hendur eða höndunum er dýft í paraffinmaska.  Að lokum eru neglur lakkaðar, ef vill.

7.500,-

Handsnyrting,
Klassísk handsnyrting þar sem neglur og naglbönd eru snyrt.  Gott handanudd og lökkun.

5.400,- 60 mínútur ekki lökkun
6.400,- 80 mínútur með lökkun

Lúxus fótsnyrting, 90 mínútur
Fótsnyrtingin hefst á fótabaði, því næst eru neglur klipptar og naglabönd löguð.  Sigg er fjarlægt og því næst er boðið upp á kornamaska. Lúxus fótanudd áður en maski fyrir þreytta fætur eða heitur paraffin maski er borinn á.  Lökkun ef vill.  Endurnærandi og slakandi lúxus meðferð. Þú svífur út!                                              . 

7.800,-

Fótsnyrting,
Eins og lúxus fótsnyrtingin er byrjað á fótabaði og því næst eru neglur klipptar, naglabönd löguð og sigg hreinsað.  Fæturnir fá gott nudd. Klassísk meðferð sem stendur alltaf fyrir sínu.

5.700,- 60 mínútur ekki lökkun
6.700,- 80 mínútur með lökkun

Vax
Snyrtifræðingar Mecca Spa vaxa þau hár sem þú vilt losna við.  Skoðið verðskrá okkar fyrir frekari upplýsingar.

Litun og plokkun
Það er fátt sem er meira áberandi en falleg augu.  Skoðaðu verðskrána okkar fyrir frekari upplýsingar.

Neglur
Við bjóðum upp á Bio Sculpture hunangsgel á neglur.  Hunangsgelið er náttúrulegra en önnur gel og fer  betur með neglurnar.  Einnig bjóðum við upp á LCN neglur sem eru sterkar og endingargóðar.  Skoðið  verðskrá okkar fyrir frekari upplýsingar.