Nýtt! Sjóperlu andlitsbað, 120 mínútur
Hágæða andlitsbað sem bætir upp tapaðar rakabirgðir húðarinnar en góður raki er lykillinn að fallegri húð. Sjálfhitandi þörungamaski er settur á bak en hann gefur frá sér stein-& snefilefni og er ennfremur vatnslosandi. Þetta andlitsbað er einstakt á Íslandi, það byggir á virkum innihaldsefnum sem unnin eru úr hafinu. Í bland við mild áhrif nuddsins skilar þessi meðferð húðinni fullkomnu rakajafnvægi og hún ljómar af hreisti.
15.500.-
Lúxus Phytomer andlitsbað, 150 mínútur
Drauma meðferð sem hefst á notalegu baknuddi því næst er heitum þörungamaskanum komið fyrir á baki og á solarplexus. Maski hitnar og gefur góða slökun, er steinefna- og snefilefnaríkur, vatnslosandi og mjög hreinsandi. Yndislegt nudd á andlit, háls, herðar og hendur. Í andlitsbaðinu eru mismunandi áherslur fyrir húð sem er tekin að eldast, viðkvæma húð, þurra húð og feita húð. Endað er á maska við hæfi. Lúxus Phytomer andlitsbað er dekur af bestu gerð.
15.500,-
Phytomer andlitsbað, 120 mínútur
Andlitsbaðið hefst á ljúfu baknuddi og því næst er maskanum komið fyrir á bakinu. Maskinn hitar og gefur góða slökun, er steinefna- og snefilefnaríkur, vatnslosandi og mjög hreinsandi. Andlitshreinsun og plokkun ef vill. Gott andlitsnudd, nudd niður á háls, herðar og bringu. Í andlitsbaðinu eru mismunandi áherslur fyrir húð sem er tekin að eldast, viðkvæma húð, þurra húð og feita húð. Endað er á maska við hæfi. Yndisleg og vinsæl meðferð.
13.300,-
Andlitsbað með lyftingu, 120 mínútur
Andlitsbaðið hefst á yfirborðshreinsun, augabrúnir snyrtar, djúphreinsikrem
og gufa. Ionto lyfting, þ.e. litlar blöðkur eru settar á andlitið sem gefa mjúkt
rafnudd í 30 mín. Þessi meðferð lyftir, stinnir og styrkir. Þessu næst er gott nudd á herðar, háls og andlit í 20mín., uppbyggjandi maski borinn á, sem styrkir teygju og sveigju þræðina í húðinni, að lokum viðeigandi krem.
Dásamleg styrkjandi meðferð fyrir þroskaða húð.
13.300,-
Andlitsbað, 90 mínútur
Klassískt andlitsbað sem hreinsar yfirborð húðarinnar. Peeling, gufa og djúphreinsun. Plokkun. Gott andlitsnudd, nudd á háls, herðar og bringu. Maski eftir húðgerð í lokin.
9.900,-
Andlitsnudd og maski, 60 mínútur
Yfirborðshreinsun og peeling á andliti og háls. Gott andlitsnudd niður háls og á herðar. Maski borinn á andlit og háls. Krem borið á í lokin til að fullkomna. Yndislegt dekur í klukkutíma sem allir hafa gott af.
7.800,-
Augnmeðferð í andlitsbaði
Meðferð sem vinnur á hrukkum og fínum línum. Nudd á augnsvæði, frábær viðbót við andlitsbað.
3.900,-
Húðhreinsun, 60 mínútur
Klassísk húðhreinsun fyrir þá sem eru með óhreina húð eða fá bólur. Yfirborðshreinsun, peeling, gufa, kreistun, maski og í lokin er viðeigandi krem borið á andlitið.
7.200,-
Lúxus handsnyrting, 90 mínútur
Handsnyrting fyrir þá sem vilja dekra við sig. Neglur og naglbönd eru snyrt og hendurnar fá lúxus handanudd. Kornamaski borinn á hendur eða höndunum er dýft í paraffinmaska. Að lokum eru neglur lakkaðar, ef vill.
7.900,-
Handsnyrting,
Klassísk handsnyrting þar sem neglur og naglbönd eru snyrt. Gott handanudd og lökkun.
5.700,- 60 mínútur ekki lökkun
6.700,- 75 mínútur með lökkun
Lúxus fótsnyrting, 90 mínútur
Fótsnyrtingin hefst á fótabaði, því næst eru neglur klipptar og naglabönd löguð. Sigg er fjarlægt og því næst er boðið upp á kornamaska. Lúxus fótanudd áður en maski fyrir þreytta fætur eða heitur paraffin maski er borinn á. Lökkun ef vill. Endurnærandi og slakandi lúxus meðferð. Þú svífur út! .
8.200,-
Fótsnyrting,
Eins og lúxus fótsnyrtingin er byrjað á fótabaði og því næst eru neglur klipptar, naglabönd löguð og sigg hreinsað. Fæturnir fá gott nudd. Klassísk meðferð sem stendur alltaf fyrir sínu.
6.000,- 60 mínútur ekki lökkun
7.000,- 80 mínútur með lökkun
Vax
Snyrtifræðingar Mecca Spa vaxa þau hár sem þú vilt losna við. Skoðið verðskrá okkar fyrir frekari upplýsingar.
Litun og plokkun
Það er fátt sem er meira áberandi en falleg augu. Skoðaðu verðskrána okkar fyrir frekari upplýsingar.
Neglur
Við bjóðum upp á Bio Sculpture hunangsgel á neglur. Hunangsgelið er náttúrulegra en önnur gel og fer betur með neglurnar. Skoðið verðskrá okkar fyrir frekari upplýsingar.
