Meccaspa

Spa og nudd

Kókosdekurnudd
Kókosdekur, 80 mínútur
Meðferðin hefst á léttu "kókos-body-scrub". Það eykur blóðflæði, hreinsar burt dauðar húðfrumur og gefur hornlagi húðarinnar mýkt og næringu . Húðin verður sléttari og heldur betur raka. Yfirborðshreinsun á andliti og hálsi. Mýkjandi og nærandi kókos-rakamaski borinn á andlit og að endingu kókos-rakakrem. Að sturtu lokinni fer viðskiptavinurinn í 50 mínútna klassískt nudd þar sem notuð er lífræn hituð kókoshnetuolía. Sérlega slakandi, mýkjandi og endurnærandi meðferð.

14.500.-

Spameðferðir

Lúxus Phytomer spa meðferð, ca. 120 mínútur
Drauma dekurmeðferð fyrir líkama og andlit.  Meðferðin hefst á yfirborðshreinsun í andliti og augnsvæði nuddað. Síðan er létt body firming scrub meðferð. Eftir það er farið í yndislegt  nuddbaðkar í 15 mínútur.  Eftir það er 30 mín. notalegt heilnudd  og maski borinn á andlit eftir húðgerð. Maski fjarlægður og viðeigandi krem borin á.  Í samráði við snyrtifræðing velur þú hvort meðferðin sé grennandi, stinnandi eða hvort markmiðið sé að losna við appelsínuhúð.  Hafðu samband við okkur til að fræðast frekar um hvað Lúxus Phytomer spa meðferð getur gert fyrir þig. ( Baðkar einungis á Nýbýlavegi, meðferð aðeins öðruvísi á hótel Sögu, nánari upplýsingar gefnar í síma).

15.000,-

Phytomer spa meðferð, ca. 90 mínútur
Frábær meðferð fyrir líkama og sál.  Meðferðin er vatnslosandi, slakandi og mjög góð fyrir húðina.  Í samráði við snyrtifræðing velur þú hvort meðferðin á að vera grennandi, stinnandi eða hvort markmiðið er að losna við appelsínuhúð. Fyrst er farið í notalegt nuddbaðkar með 120 litlum loftgötum, í 20 mínútur. Þar á eftir er viðkomandi pakkað inn í varmafilmu og teppi, slakað á í 20 mínútur.  Að endingu er létt sturta og ljúft hálftíma heilnudd með viðeigandi kremum. (Baðkar einungis á Nýbýlavegi, meðferð aðeins öðruvísi á hótel Sögu, nánari upplýsingar gefnar í síma ).

12.800,-

Airbrush brúnkumeðferð - Magic Tan

4.800.-

Nuddmeðferðir

Ayurveda nudd, 80 mínútur

Ayurveda nudd er elsta nudd Indverja. Notaðar eru sérstakar orkuolíur og einnig ferskar jurtir sem hitaðar eru í vöndli og dumpað/nuddað yfir líkamann. Þetta nudd er einstaklega gott fyrir blóðrásarkerfið, er hreinsandi og slakandi.

11.500.-

Ilmolíunudd, 50 mínútur / 80 mínútur
Í ilmolíunuddi eru notaðar ilmolíur sem hafa mismunandi áhrif á líkamann og sál.  Heilnudd sem er afar slakandi.

9.400.-/11.500,-

Mecca Spa nudd, 80 mínútur
Mecca Spa nudd byrjar í drauma nuddbaðkari með 120 nuddstútum sem virka sérstaklega á sogæðakerfið.  Í vatnið er settur frostþurrkaður sjór sem er mjög hreinsandi og nærandi fyrir húðina.  Við tekur nuddari Mecca Spa við og býður upp á vandað heilnudd.

11.500,-

Klassískt nudd, 50 mínútur
Hefðbundið íslenskt djúpnudd sem losar um spennu og bólgur.

8.400,-

Meðgöngunudd, 50 mínútur

Hefðbundið íslenskt djúpnudd sem losar um spennu og bólgur, notaður er meðgöngunuddbekkur.

8.400,-

Slökunarnudd, 50 mínútur
Nudd að sænskum hætti sem er afar slakandi.

8.400,-

Sogæðanudd, 50 mínútur
Sogaæðakerfið er hreinsikerfi líkamans.  Sogæðanudd er djúpnudd sem er mjög hreinsandi fyrir líkamann.

8.400.-

Fótanudd, 25 mínútur
Frábært fyrir þreytta fætur.

5.200,-

Partanudd, 25 mínútur
Nudd þar sem ákveðinn hluti líkamans er tekinn fyrir og nuddaður.

5.200,-

Fleiri tegundir í boði sjá undir verðskrá!

 

Póstlisti

Nafn:
Netfang:
Mailing Lists:
Meccaspa
Nýbýlavegi 24
Kópavogur
511-2111
Kort
         
Hótel Saga
Reykjavík
564-1011
Kort

hotelsaga@meccaspa.is