
Nú sameinum við Zumba og fit-pilates (Zumba-lates) í 4 vikna námskeiði
Fjör, góð tónlist, gleði og gaman![]()
Tímar verða á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:15
Að auki verður laugardagsfjör 12., 19. og 26. maí frá kl. 10:30 – 12:00
Tímarnir verða byggðir upp þannig að fyrstu 30-35 mínúturnar verður Zumba og
styrktaræfingar úr fit-pilates prógramminu verða svo teknar í seinni hluta tímans.
Fit-pilates þjálfar djúpvöðva líkamans og gefur langa og stinna vöðva. Áherslan er á miðju líkamans og stoðkerfi hans og eru æfingarnar styrkjandi og liðkandi.
Zumba er fyrst og fremst brennsla og gleði sem fær alla til að brosa. Allir geta tekið þátt í Zumba óháð aldri. Þú þarft ekki að kunna neitt í dansi eða sporum til að geta verið með í Zumba. Aðal málið er að hreyfa sig, njóta frábærrar tónlistar, brosa og hafa gaman.
Námskeiðið kostar kr. 5.000
Skráning hjá Berglindi: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 891-6901
Dönsum okkur inn í sumarið
Hlakka til að sjá þig :)

![]()