
Kristín Jónsdóttir - ÍAK einkaþjálfari - Sími: 893-2396 -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Kristín Jónsdóttir útskrifaðist frá Íþróttaakademíu Keilis vorið 2009. Hún hefur starfað sem einkaþjálfari í Mecca spa síðan.
Býð upp á einkaþjálfun fyrir konur á öllum aldri. Tek einnig að mér 2-4 saman í hóp.
- Geri líkamsstöðugreiningu og hanna einstaklingsmiðað æfingakerfi út frá greiningunni sem byggja á stöðugleika, styrk og jafnvægi.
- Legg áherslu á interval þolþjálfun sem er talin ein besta leiðin til að styrkja hjarta- og æðakerfið.
- Hvatning, aðhald og næringarráðgjöf með reglulegum ummáls- og fituprósentumælingum til þess að ná settu markmiði.
-----------------------------------
Umsagnir um Kristínu Jónsdóttur
Í einkaþjálfunini hjá Kristínu hef ég fundið að þar er atvinnumanneskja á ferð. Enginn hamagangur heldur markviss þjálfun og gott æfingaprógram til notkunar utan tíma. Við reglulega viktun og matarráðgjöf hafa 8 kg fokið síðan í október.
-Kristín glerfína
Ég hef síðast liðna 3 mánuði notið leiðsagnar Krístínar Jónsdóttur, einkaþjálfara í Mecca Spa. Með einstaklega fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum, bæði á dýnu og í tækjum hefur Kristínu svo sannarlega tekist að endurvekja löngun mína til líkamsræktar. Sérhver tími líður ótrúlega hratt vegna góðrar skipulagningar þjálfarans. Hvatning og eftirfylgni í vigtun og mælingu er líka af hinu góða. Þetta er með því skemmtilegra sem ég hef gert í langan tíma og ekki skemmir fyrir ómældur árangur, bæði á líkama og sál.
-Kristín Einarsd