Meccaspa

Mömmu leikfimi - (fit pilates og kerrupúl)

Mömmuleikfimi er ekki í gangi eins og er

Mömmuleikfimi (fit pilates og kerrupúl)


meccaspa-0094x5cm

Fjölbreyttir tímar sem hjálpa nýbökuðum mæðrum að komast í form eftir barnsburð.

Þol og styrktarþjálfun fer fram inni í sal en svo verður útipúl með kerrurnar/vagnana einstaka sinnum. Börnin eru með í tímunum og þau fá að njóta tímans með mæðrum sínum. Frábær stund fyrir móður og barn og ekki er verra að móðirin kemst fljótt í form! Tímarnir verða byggðir upp á Fit pilates prógramminu, en prógrammið leggur áherslu á svæðið í kringum miðju líkamans, kvið og bak, rass og læri.


Hægt verður að fá ummálsmælingar fyrir og eftir námskeið og jafnframt ráðleggingar varðandi mataræði og hreyfingu utan tímanna. 


Tímarnir:  Mán + Mið + Fös kl. 10.45 -12.00 

Tímabil: 19. Sept. - 4. nóv.

Verð: kr. 15.900 fyrir 6 vikur (3x í viku). (Innifalið í verði er ótakmarkaður aðgangur að tækjasal Mecca Spa í Kópavogi, aðgangur að sundlaug, heitum potti og gufu og 10% afsláttur í glæsilega snyrti- og nuddstofu Mecca Spa Kóp)

Staðsetning: MeccaSpa í Kópavogi

Kennari: Elísabet Tanía - Hún hefur kennt mömmu- og meðgönguleikfimi með góðum árangri. Er lærð Fitness Instruktor frá Instruktor skólanum í Danmörku  og með réttindi til að kenna bæði Boot Camp og Fullfrísk, ásamt því að vera Master kennari í Fit Pilates og Meðgöngu /mömmu Fit Pilates.

Skráning: Allar nánari upplýsingar og skráning eru í síma 699 6627 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  


 

Póstlisti

Nafn:
Netfang:
Mailing Lists:
Meccaspa
Nýbýlavegi 24
Kópavogur
511-2111
Kort
         
Hótel Saga
Reykjavík
564-1011
Kort

hotelsaga@meccaspa.is