Phytomer eru einstakar snyrtivörur úr heimi hafsins.

Phytomer er brautryðjandi á sínu sviði og var fyrsta vörumerkið sem nýtti sér kosti hafsins í snyrtivörur. Þessar vönduðu snyrtivörur eru samsettar úr bestu fáanlegum efnum sjávar, sem eru mjög áhrifarík og góð fyrir húðina. Phytomer er afrakstur áratuga rannsókna á tengslum hafs og húðar. Hafið hefur 104 snefilefni sem eru frumum líkamans nauðsynlegar. Snefilefnin styrkja frumurnar og veita líkamanum nauðsynlegt jafnvægi. Sjórinn hefur einnig eiginleika sem svipar til blóðvökva og því eru Phytomer snyrtivörurnar einstaklega gagnlegar húðinni.
Hér getur þú fundið hvaða meðferðir og vörur Phytomer henta þér best.
Verið velkomin í heim Phytomer